HeliBoard/fastlane/metadata/android/is-IS/full_description.txt
2025-03-02 07:34:00 +01:00

30 lines
2.4 KiB
Text

HeliBoard er lyklaborð sem verndar persónuleg gögn, byggt á AOSP / OpenBoard.
Notar ekki heimildir fyrir internet og er þannig 100% ónettengt.
Eiginleikar:

Bættu við orðasöfnum fyrir tillögur og stafsetningaryfirferð

útbúðu þín eigin orðasöfn eða náðu í þau hér, eða í tilrauna-hlutanum okkar (gæði gætu verið af ýmsum toga)

viðbótar-orðasöfn með emoji-tjáningartáknum eða vísindatáknum er hægt að nota við tillögur (svipað "emoji leit")

athugaðu að fyrir Kóreskar lyklaborðsframsetningar, munu tillögur einungis virka með því að nota þetta orðasafn, þar sem verkfærin í orðasafnageymslunni okkar ná ekki að útbúa önnur orðasöfn sem virka

Sérsníddu lyklaborðsþemu (stíl, liti og bakgrunnsmynd)

getur fylgt dags-/nætur stillingum kerfisins á Android 10+ (og á sumum útgáfum Android 9)

getur fylgt breytilegum litum á Android 12+

Sérsníddu framsetningar lyklaborðsins (einungis tiltækt þegar nota tungumál kerfis hefur verið gert óvirkt)

Sérsníddu sérstakar framsetningar, eins og tákn, tölur eða framsetningu aðgerðalykla

Fjöltyngdur innsláttur

Glide-innsláttur (einungis með lokuðu séreignar-aðgerðasafni ☹️)

aðgerðasafnið fylgir ekki með hugbúnaðnum, því miður er ekkert samhæft aðgerðasafn tiltækt með opnum grunnkóða

hægt er að nálgast það úr GApps-pökkum ("swypelibs") eða sækja það hér (smelltu á skrána og síðan á "raw" eða litla niðurhalshnappinn)

Klippispjaldsferill

Einnar-handar hamur

Skipt lyklaborð (aðeins í boði ef skjárinn er nógu stór)

Talnaborð

Taktu öryggisafrit og endurheimtu stillingarnar þínar eða lærð orð eða gögn vinnsluferils